Hæ hæ jæja ég er loksins búin
að opna barnalandsíðu, og er búin að setja inn nokkrar myndir
af litlu prinsessunni.
Hún er læst síðan og er
lykilorðið nafnið á gæludýrinu sem ég átti þegar ég var barn,
og gauti átti einnig gæludýr og hétu þau sama nafninu.
Ferlega skondið.
En ef þið munið ekki hvað
gæludýrin okkar hétu að þá bara sendið mér póst og þið fáið
passwordið um hæl sent til ykkar.
Ég ætla að reyna svo að vera dugleg að uppfæra
barnalandsíðuna og skrifa einnig í vefdagbókina þar, svo ég veit
ekki hvað ég verð dugleg að skrifa hér inn. Jafnvel hætti ég
með þessa síðu og verð bara með barnalandsíðuna. En kemur í
ljós síðar.
Annars allt gott að frétta af okkur hérna, litla
prinsessan okkar dafnar vel og þyngist vel, orðin algjör bolla sú
litla.
Tengdó er í heimsókn hérna hja okkur þessa dagana og
hefur það verið rosalega gaman. Eru alveg dáleydd af nýjasta
barnabarninu sínu.
Fara heim á morgun og er það nú
leiðinlegt. Ég er öll að koma til, rifnaði slatta í
fæðingunni og hef verið óþolinmóð hvað varðar bata þarna niðri.
En þetta er allt saman á réttri leið og mér líður betur
með hverjum deginum. Guð sé lof fyrir það, því gauti er að fara
vinna aftur á mánudaginn og þá verðum við bara tvær einar í kotinu,
og verða það mikil viðbrigði. En skrifa meir um það allt saman ínna
vefsíðunni hjá litlu dúllúmúsinni minni. 
Verið dugleg að kíkja inna barnalandsíðuna, og
kvitta í gestabókina, finnið síðuna undir óskírð
gautadóttir.
Hafið það annars sem allra best og verið góð við
hvort annað. Ósk MAMMA kveður að sinni.