Litla músin mín er 5 mánaða i dag, váaa finnst eins og ég hafi fætt hana i gær liggur við. Tíminn þýtur jú alltaf áfram, enda er það bara fínt. Við höfum það bara gott litla familían. Gauti vinnur og spilar á gítarinn fyrir litlu snúlluna sína, þið ættuð bara að sjá framan í hana þegar hann byrjar að spila,henni finnst það sko ekki leiðinlegt. Hun ljómar öll og finnst það rosa gaman.

Hún er byrjuð að borða rísgraut og er yfirleytt dugleg að borða. Hún er á brjósti ennþá og er það voða þægilegt en bindandi því ekki kemst ég langt án hennar. En það er alltílagi enn sem komið er.
Við dúllum okkur saman á daginn, erum búnar að vera duglegar að hitta Rannveigu okkar og hana Ellu okkar. Og vera í búðarrápi , svo það er bara gaman
Í gærkveldi sat ég í makindum minum uppi sófa að horfa á tv og ísabella hálfsofandi á brjóstinu mínu. Þegar skyndilega sloknar a öllu, vard allt dimmt, sems rafmagnið fór og váaa hvað mér brá, ég stökk á fætur og með ísabellu í fanginu að finna kveikjara sá bóstaflega ekki neitt, ógeðslega óþægilegt, fann kveikjarann og flýtti mér að kveikja á kertum og sem betur fer varð ísabella ekki hrædd, svo kíkti ég út um gluggan og allt dimmt engin götuljós eda ljós i húsinu á móti. ÚFFFF vard hugsað til allra hryllingsmynda sem ég hef séð um æfina + hryðjuverk já já 
ekki mjög skemmtilegt, hugsaði bara já já nú er búið að taka rafmagnið af kaupmannahöfn og það gerist e-ð hræðlegt........en sem betur fer þá hringdi bjallan mitt íi þessum crazy hugsunum og varð það gauti minn að koma heim af fundi. Og ég tjáði honum hugsanir mínar og ´honum varð nú skemmt að hlusta á konuna sína. En stuttu síðar komu götuljósin á og einum og hálfum tíma síðar kom rafmagnið á. Jáaaa sem betur fer á ég alltaf kerti. En rafmagnið fór af hér í vanlöse og í nágrenni líka svo það er slatti mörg hús.
En af öðru þá hef ég STÓRTÍÐINDI að segja frá eruð þið spennt eða á ég ekki að segja ykkur........ Jú ég verð því ég er að deyja úr spenningi og vil deila því með ykkur kæru vinir og fjölskylda, og þið hin sem ég kannski þekki ekki en lesið þennan pistil. En ´málið er það að ég á nottlega svo yndislega foreldra að þið bara trúið því ekki en ÞAU sem sagt mamma og pabbi eru að bjóða okkur mæðgunum heim til ÍSLANDS já þið lásuð rétt. Ég og Ísabella erum að koma í 10 daga. Komum 3 OKT, sem sagt bara 10 DAGAR í AÐ VIÐ KOMUM HEIM Á KLAKANN. GUÐÐÐ mér hlakkar svo mikið til, nottlega væri bestast ef gauti gæti komið líka en hann þarf að vinna svo hann greyið verður að vera án okkar í 10 daga. En þeir eru fljótir að líða.
HLAKKA BARA ROSAMIKIÐ TIL AÐ SJÁ YKKUR Á Íslandinu GÓÐA. 
MUNIÐ VERIÐ GÓÐ HVORT VIÐ ANNAÐ Og EKKI GLEYMA Að BROSA FRAMAN Í HEIMINN, þÁ MUN HEIMURINN BROSA FRAMAN Í ÞIG. Hilsen Ósk Stef.