Góða kvöldið
nær og fjær. Jæja
aldeilis kominn tími á smá færslu hérna inn. Er alls ekkert að standa mig í
þessu bloggi þessa dagana en allavega hér kemur smá bloggfærsla
beint fra köbenhavn city. Nú vikan er búin að vera
aldeilis fín hjá okkur hjúum. Brjálað að gera í skólanum hjá
mér. Er að skrifa
stórt verkefni um Psykologi þessa dagana ásamt gruppunni minni
og er það hægara sagt en gert en þetta er allt að koma hjá
okkur.
Nú svo er
munnlegt próf hjá mér núna í byrjun nov. skemmtilegt að hugsa
til þess. En það
mun reddast eins og
allt annað reddast ekki satt. BJARTSÝNI kemur manni alveg
ótrulega langt áfram í lífinu. Munið það
elskurnar.
Svo ég geri
ekkert annað en að læra og sofa og borða og jú reyni að kíkka
annaðslagið í tölvuna. Svo er míns bara kvefuð
núna eða við bæði hjúin erum kvefuð. Gauti er að verða góður en
ég er barasta hálfslöpp af þessu kvefi en harka sex þýðir
ekkert annað. Nú
Gauti bónar og bónar drossínuna okkar og er alltaf að þrífa
bílinn og vesenast í bílnum, hann verður búin að bóna lakkið
af held ég bara á endanum þessi elska.
Allavega ek ég um á hreinum
bíl það er víst ábyggilegt.
Höfum verið heima
hjá einni stúlkunni að læra undanfarna daga og býr hún ca 30 mín
héðan frá kaupmannahöfn, svo ég þeysist um hraðbrautina á hverjum
degi og á eg´að segja ykkur að mér finnst bara ekkert gaman að
keyra hratt á hraðbrautinni, skil þetta ekki er bara hálfnervus og
held mig á 100km. hraða eins og gamla fólkið og bílarnir þeysast
framhjá GÖMLU konunni þ.e.a.s mér. Já var að ræða þetta við manninn
minn áðan fannst þetta heldur undarlegt því að á milli ak og rv. að
þá á maður í stanslausum erfiðleikum að halda hraðanum niðri og
bensínfóturinn og alloft þungur á bestu köflunum svo hvað er málið,
ég á hraðbraut og má keyra HRATT, umferð bara í eina áttina 3
akreinar og míns bara þorir ekkert að keyra. JÚ komumst að þeirri niðurstöðu
að maður þekkir leiðina á milli ak. og rvk. búin að keyra hana
soltið MIKIÐ OFT. En
ég er bara rétt að kynnast hraðbrautinni og alltaf að fylgjast með
hvað frárein ég á að taka svo ég endi ekki einhversstaðar í
RASSGATI, svo þess vegna er ég bara enn smá nervus
skoooo. JAMM svo leið
og ég verð nú orðin fulbifær á hraðbrautinni að þá get ég farið að
keyra almennilega skoooo hi hi
Ekki það að maður á að keyra
varlega og fara öllu með gát alltf, og passa hraðann. EKKI SATT.

Erum nýbúin að
borða HRYGG í kvöldmatinn og brúnaðar kartöflur og salat ummhhhhh
þetta var sko æðislega gott og gauti kokkur hann brúnaði
kartöflurnar eins og hann hefði aldrei gert
annað. Jú Jú
nefndi það nú við hann áðan að ég hann ætlaði að halda áfram
eldamennskunni og ég þarf ekki að gera neitt að þá verður
hann bara kokkurinn á heimilinu og ég sé bara um e-ð
annað. Væri það
ekki algjör snilld. 
Hann situr núna og
glamrar á gítarinn þessi elska getur spilað alveg endalaust og
þegar við flytjum í húsið sem hann byggir og tengdapabbi byggja á klakanum
að þá verður alveg sér svona SPILAHERBERGI fyrir elskuna mína þar
sem hann getur setið og spilað endalaust.
Ekki miskilja mig hann
spilar rosa vel og stundum rosa gaman að hlusta á hann en svo
stundum væri ágætt að hafa tónlistarherbergi og þá sérstaklega
þegar hann er að læra ný LÖG. 
Erum á leið í
barnaafmæli á morgun til Rannveigar vinkonu, Haukur er 4 ára, litli
snáðinn. Verður rosa
gaman að komast i súkkulaðikökuna góðu hjá Rannveigu nammi namm.

ELSKU ADDÝ OG ÞORRI
INNILEGA TIL HAMINGJU MEÐ TRÖLLA SÆTASTA.
HANN VAR 18 MERKUR SNÁÐINN SÁ SVO
KANNSKI EKKI HÆGT AÐ SEGJA LITLA ÞEGAR MAÐUR TALAR UM
HANN. EN HANN ER ALVEG
ROSALEGA SÆTUR OG MIKIÐ BOLLUKRÚTT SNÁÐINN. EF YKKUR LANGAR AÐ SJÁ MYNDIR AÐ
ÞÁ ERU ÞÆR INNA HEIMASÍÐUNNI HANS ALEXANDERS STÓRA BRÓÐUR HÉRNA
VINSTRA MEGIN Á SÍÐUNNI. KOSSAR OG KNÚS FRÁ OKKUR
SKÖTUHJÚUM Í DK.
Med Venlig Hilsen
Ósk Stef.