Sælar elskurnar mínar, löngu kominn tími á fréttir. KÆRAR
ÞAKKIR FYRIR ALLAR KVEÐJURNAR.
Þið eruð yndi allar saman.
Nú við erum flutt í íbúðina OKKAR, og er það alveg æðislegt, hún
svo hugguleg og bara allt svo huggulegt hérna, hverfið ,sameignin,
nágrannarnir, þvottahúsið, supermarkaðirnir sem eru í 3 mín
fjarlægð, hvað vill maður meir. Allavega þá er þetta bara
fullkomið, gauti er búin að standa á haus síðan við fengum íbúðina
afhenta fyrir akkúrat viku síðan í dag. Hann er búin mála
svefnherbergið, taka teppið af þar, og er að vinna núna í gólfinu í
svefnherbergniu. Svo það styttist í að við flytjum úr
stofunni góðu og inn í svefnherbergið okkar.
Erum svo spennt að
komast inn í svefnherbergið okkar, þar sem við svafum í stofunni á
kollegiinu í 1 og hálft ár. Já tíminn er fljótur að líða eins
og ég tönglast alltaf á.
Þið fáið svo myndir af öllum
herlegheitunum þegar íbúðin er orðin klár. ÉG LOFA
Gauti hefur mestar áhyggjur af að ná ekki að gera allt fullkomið
áður en krílið kemur í heiminn, en ég segi honum að hafa ekki
neinar áhyggjur því krílið ætlar að vera stillt í maganum á mömmu
sinni þangað til settur fæðingardagur nálgast, og pabbinn er búin
að gera allt fínt og afi og amma eru mætt á svæðið til að vera
viðstödd fæðingu á barnabarninu og aðstoða okkur hjúin. Jú jú
þetta ræði ég við bumbubúann mínn af og til, svo hann sé með allt á
hreinu skooo hi hi. 
En talandi um þessi litlu krílí að þá eignaðist hún Ollý mágkona
mín litla stelpu þann 5 mars. síðastliðinn.
Svo gauti er
búin að eignast systurdóttur, og er hann sko mjög spenntur yfir
því. Við bíðum allavega spennt eftir myndum af litu
prinsessunni
Elsku Ollý og Valur innilega til hamingju með litlu
prinsessuna.


Nú ég fór í mæðraskoðun 1 mars. síðastliðinn, og kom svona allt
ljomandi vel út eins og alltaf. Fínn blóðþrýstingur, fínt
svag, fínn hjartsláttur og bara allt eins og á að vera.Já og barnið
er búið að skorða sig, ekki ma gleyma því.
Enda hef ég
engar áhyggjur, litla krílinu mínu virðist liða þrælvel í bumbunni
minni. Enda eru spörkin orðin það öflug að það sést stundum á
maganum mínum þegar barnið sparkar eða er að hreyfa sig, og það er
sko ekkert smá skemmtileg upplifun að finna bara t.d hælinn á
barninu sínu skjótast þarna út um síðuna á manni. Þetta er alveg
yndislegt allt saman. Ég þarf vísu að PISSA aðeins of oft á
nóttunni fyrir minn smekk, en það fylgir jú bara,
Var með
soltinn bjúg á fótunum um síðustu helgi en það var nú bara að því
að ég ósk stef, varð að klára eldhúsið á einu kvöldi. Já
maður gleymir því hreinlega stundum hvað maður er komin langt á
leið, svo ég hef verið að reyna að passa mig síðan þá. Rannveig og
haukur, komu svo í heimsókn síðasta laugard. og var það voða
notalegt, því rannveig hjálpaði mér að skipuleggja eldhúsið og taka
sumt eldhúsdót upp úr kössunum og svona, held að hun hafi nú ekki
verið sátt við vinkonu sína að ætla geyma margt eldhúsdót í kössum
upp í skáp.
Svo var hún mjög dugleg að segja við mig
þarftu nú að eiga þetta, viltu ekki bara henda þessu,´og ég saup
hreinlega kveljur, því ég tími ekki að henda neinu. Vissi nú
samt ekki að ég væri svona slæm, en ég þarf að hleypa henni í
fataskápinn minn og þá getur hún sannfært mig um að henda fötum
bolum sem voru keyptir á spáni árið 2001 og svona he he.
Takk fyrir hjálpina monsan mín.
Já ekki má ég gleyma að minnast á hann Óla vin okkar, en hann er
smiður eins og Gauti og vinna þeir saman, og hún Ella mín sem er
konan hans óla, hún kallar sem sagt gauta og óla hjónin. Sem
á by the way mjög vel við. Því þeir eyða í raun meiri tíma
saman tveir en með okkur konunum, og eftir að vera búin
að vinna saman í 8 tíma á dag að þá talast þeir við í síma sko 2-3
sinnum eftir vinnudaginn.
Jú jú svona er lífið í
danaveldinu. he he
En þau óli og ella eru nú alveg frábær
skötuhjú og eru búin að bjóða okkur svo oft í dýrindis máltíðir að
við skötuhjúin skuldum þeim mörg matarboðin Þegar íbúðin verður
klar. Svo um daginn fengum við fallegt rimlarúm hjá þeim, sem
barnið okkar mun sofa í. Takk fyrir það elskurnar. Jæja
óli var að væla um að vera ekki nefndur á blogginu mínu, svo hér er
aldeilis pistill um hann óla smið.


En nú er komið að því að elda handa elskunni minni. Svo ég vona
að þið séuð sátt við þennan pistil að þessu sinni, ég lofa svo að
hafa ekki svona langt á milli þangað til næst, BUMBULÍNAN 